Wednesday, January 20, 2010

St st st Studio Dan

Fór í langferð til að hitta mann sem er með litla tækjaleigu og stúdíó. Hann og ljósateamið hans voru að undirbúa auglýsingu í fyrramálið en settust niður í kaffi með mér. Mjög hressir náungar og þeir gátu sagt mér fullt, gáfu mér númer, sögðu mér við hvern best væri að tala og svona. Hressir gaurar. Svo fóru þeir aftur að vinna og hengja upp spacelights í stúdíóinu.
Hér er víst einhver kjarabarátta um að lengja vinnadaginn úr 8 tímum í 10 tíma, og það er aðalmálið, either way, það eru tólf tímar heima þannig ég er samt að græða. Þeim fannst við vera klikkaðir að vinna í 12 tíma því þeir verða ansi oft 14 eins og þeir vita...





En þeir hafa kannski einhver not fyrir mig í febrúar, svo eru þeir búnir að landa 2 bíómyndum sem á að gera á árinu... þannig vonandi taka þeir mig í eitthvað.

Svo fór ég bara í labbitúr / kebabhunt um Gamle Stan. Sem er ennþá frábær og með fullt af afkimum.





So en ég fann kebabstað og hér kemur dómurinn:

Nafn: Jerusalem Kebab (í Gamle Stan)
Verð: 80SEK fyrir kebabvefju og litla kók
Þjónusta: Frábær, vingjarnlegir gaurar og ég var eini kúnninn. Notalegur staður samt á notalegum stað.
Gæði matar: Mjög gott en ekki beint kebab sem mér datt í hug þegar ég smakkaði. Það var smá ferskur kóríander settur inní sem gaf smá aukabragð sem var gott en ekki beint eins og kebab á að vera. Svo komu sósurnar í layers, stundum fékk maður rótsterkan bita og stundum mjög mildan, sem var skemmtilegt lotterí.
Stjörnur: 3,5/5, það var fín stemming þarna og snyrtilegt, maturinn var góður en ekki eins og kebab á að vera.




húha

7 comments:

  1. Var þetta stúdíó hjá Wallin bræðrunum?

    ReplyDelete
  2. John, I'm only dancing. She turns me on...

    Hvernig væri að fá einhverja kaffi-dóma? Ég vil bara gott kaffi þegar ég kem. Og gott hvítvín/rauðvín. Og jújú, ég skal þá smakka Kebab, for the second time.
    Tvöfaldan expresso með örlítilli heitri mjólk.

    knús&kelerí

    BB.

    ReplyDelete
  3. Hey það er ekkert vesen að finna gott kaffi! Það eru kaffihús útumALLT. En ég skal leggjast í smá research fyrir þig, verst að ég drekk ekki espresso þannig ég gæti komið með skakka niðurstöðu... Færð kannski kaffidóm um helgina.

    ReplyDelete
  4. úje! Það er samt í lagi að taka latte, ég get þá bara gert ráð fyrir því að þeir standi sig í espresso ef þeir standa sig í Latte. Til í tvöfaldan samt?

    ReplyDelete
  5. Tékka mögulega áessu um helgina, tek tvöfaldan.

    ReplyDelete